Ættarmót í sumar

Kæru ættingjar það var komin tími á að við kæmum okkur upp nútíma háttum ættin og þessvegna stofnuðum við þessa bloggsíðu í tengslum við ættarmótið sem er framundan og bara yfrihöfuð fyrir ættarahugasemdir hverjar svo sem þær eru. Velkomin á BLOGGIÐ Smile Ég vil hvetja ykkur til að koma hér með allar þær athugasemdir sem ykkur dettur í hug varðandi ættina sem slíka en auðvitað fallegar ekki þarf nú að taka það fram, þó við þurfum alls ekki að vera sammála um hlutina Halo 

Fyrirhugað er að halda ættarmót í sumar júlímánuði. Afkomendur mun fá bréf sent á næstu vikum með nánari upplýsingum og mun það bréf einnig verða birt hér. Það sem þið þurfið að gera nú er að byrja á að láta ykkur hlakka til mótsins og vera jákvæð gangvart þessu. Þetta er jú magnað tækifæri til að hitta skemmtilegt fólk sem í þokkabót er skilt manni Grin

Njótið lífsins kæru ættingjar þar til næst

fyrir hönd síðunnar

Ragna Valdís (Fjólu og Ella dótrtir fyrir þá sem ekki vita)  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband